Vangaveltur um úrslit HM og enskalandsliðið.

Jæja þá er HM langt komin og útlit fyrir æsispennandi 8 liða úrslit.  Leikur Þjóðverja og Argentínu í dag var hin mesta skemmtun þó svo að fyrri hálfleikur hafi verið frakar þunnur.  Með þessu held ég að Þjóverjar séu komnir með aðra löppina og þrjár tær í úrslitin því að ég persónulega held að þeir eigi eftir að valt yfir vælukjóana frá Ítalíu.  En svo er það spurning hverjum þeir mæta í úrslitunum.  Það er eitthvað sem segir mér að það ráðist í leik Frakka og Brasilíu því að ég held að Portugal sé ekki að fara gera neina stóra hluti þó svo að ég voni innilega að þeir vinni England stórt á morgun. 

Enskalandsliðið fer alveg einstaklega mikið í taugarnar á mér, sérstaklega vegna þess að íþróttafréttamenn Sýnar snobba svo mikið fyrir enskaliðinu.  Það virðist vera alveg sama hvernig þeir leika og hvað þeir gera þá lækkar liðið aldrei í áliti.  Það er meira segja svo slæmt að þeir tala um Peter Crauts(veit ekki hvernig það er skrifað) sem stórann og stæilegann, eru þeir ekki að horfa á sömu leiki og við hann er langur og mjór og að mér finst getur voðalega lítið.  Það þarf einhver bara að koma því inn í hausinn á fólki að ENGLAND GETUR EKKI NEITT!!!!!!

Mín spá er sú að Þýskaland og Frakkland mætist í úrslitum.

Það yrði magnað.  

Ég legg til að lokum að Íslendingar taki sig saman og sendi ensku bullunum nokkrar kippur af bjór svo að þeir geti drekkt sorgum sínum eftir leikinn á morgun. 


mbl.is Argentínumenn féllu úr keppni eftir vítaspyrnukeppni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jæja... ekkert að gerast á síðunni. Er þér orðið sama um öll áhyggjuefni samtímans Hlynur, eða hvað er að gerast.....

Gummi (IP-tala skráð) 9.7.2006 kl. 21:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband