23.5.2006 | 15:56
47 miljónir?!
Jæja þá er það komið á hreint, kostnaðurinn við þáttöku okkar í Eurovision er ekki nema litlar 47 milljónir, hvað er það miðað við útkomuna. Það kostar sitt að gera heila þjóð að athlægi.
En 47 miljónir finst mér svolítið mikið, ætlið það væri ekki hægt að reka lítinn grunn eða leikskóla í eina önn eða svo.
En það sem er búið er búið og verður ekki lagað úr þessu og ekkert að gera nema læra af þessu og næst þá skulum við senda drengjakór MÍ!!
Nú skulum við bara gleyma þessu öllu saman, ég ætla allaveganna að gera það og lofa því hér með að minnast ekki einu orði á "Silviu" eða Eurovision aftur á þessari síðu í allaveganna 10 mánuði eða þangað til maður getur hneikslast á næsta framlagi Íslands.
mynd fengin af mbl.is
Kostnaður RÚV umfram tekjur vegna Eurovision var 47 milljónir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.5.2006 | 21:32
Góða nótt Silvia.
Nú ættum við að gleyma Silviu og leyfa Águstu Evu að koma heim og hvíla sig, réttast væri að láta hana sviðsetja andlát "Silviu" á hótelherbergi sínu í Aþenu. Þá þyrftum við ekki að hafa áhyggjur af henni meir, svona svipað og Elvis gerði hér um árið.
En það er greinilegt að nú þarf RUV að hugs sinn gang því að við sendu litla sæta ofdekraða gelgju og verðum að athlægi fyrir framan margar miljónir manna (kanski var það ætlunin en öllu má nú ofgera). Á meðan senda Finnar miðaldra karla á grímubúningum og slá öll met. Kanski við ætum bara að senda Megas og Súkkat á næst ári eða bara að spara þessar miljónir og bara að láta okkur nægja að sitja heima og horfa bara á úrslitin í beinni. Við komumst hvort sem er aldrei alla leið!
Mynd fengin af mbl.is
Silvía Nótt endaði í 13. sæti í forkeppninni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.5.2006 | 16:28
Jæja Jæja
Jæja gott fólk þá er sumarfríið búið mjög fínt, át og drakk svo mikið að bakið gaf sig. En ég notaði tíman meðal annars til að ákveða hvað ég vill gera með þessa blogsíðu og ákvað að skrifa ekki um sjálan mig og hvað er að gerast hjá mér heldur frekar að skrifa um það sem mér finst að betur mætti fara í heiminum og aðrar þess háttar pælingar, sumir gætu kallað það nöldur og tuð. Kanski ég kalli síðuna það bara. En þá sem langar til að vita hvað sé að gerast merkilegt hjá mér er bent á síðuna hennar Hörpu minnar: http://slagharpa.blogspot.com/.
Takk fyrir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)